|
Góð stemming og þátttaka á Kaffihúsaskákmóti KAABER og UMF Þristar |
|
Skrifað af Administrator
|
|
Tuesday, 19 May 2009 |
|
Kaffihúsaskákmót KAABER og UMF Þristar fór fram laugardaginn 9. maí á Skriðuklaustri. Þátttaka var með besta mót en alls mættu 15 þátttakendur til leiks. Sex í flokki 17 ára og eldri og níu í flokki 16 ára og yngri. Telfdar voru fimm umferðir hjá eldri og níu hjá yngri. Var keppnin nokkuð jöfn og spennandi í báðum flokkum. Gaman var að sjá hve margir ungir og efnilegir skákmenn reyndu með sér og ekki var síður skemmtilegt að fylgjast með þeim eldri og reyndari. Um mitt mót var gerð hlé á keppni og gæddu þá keppendur sér, í mesta bróðerni, á glæsilegum kaffiveitingum að hætti Skriðuklausturs. Úrslit urðu eftirfarandi: 16 ára og yngri: 1. Ágúst Jóhann Ágústsson með 9 vinninga 2. Ágúst Már Þórðarson með 8 vinninga 3. Mikael Máni Freysson með 7 og hálfan vinning. 17 ára og eldri: 1. Viðar Jónsson með 5 vinninga 2. Albert Geirsson með 4 vinninga 3. Jón Björnsson með 3 vinninga. Þökkum við öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna, KAABER fyrir veglegan stuðning við mótið og Skriðuklaustri fyrir góðar móttökur og veitingar. |
|
|
Kaffihúsaskákmót KAABER og UMF Þristar |
|
Skrifað af Administrator
|
|
Tuesday, 05 May 2009 |
|
Hið árlega kaffihúsaskákmót KAABER og UMF Þristar fer fram á Skriðuklaustri laugardaginn 9. maí kl 14.00. Keppni verður með hefðbundnum hætti, keppt í flokkum 16 ára og yngri og 17 ára og eldri. Vegleg verðlaun verða í boði að vanda í báðum flokkum þ.e. glæsilegur farandabikar og eignarbikar fyrir fyrsta sæti og verðlaunapeningar fyrir fyrstu þjú sætin. Þátttökugjald er 500 kr og innifalið í því er gómsætt kökuhlaðborð að hætti hússins. Skráning fer fram á staðnum eða í síma 6946339. Vonumst til að sjá sem flesta og þökkum KAABER kærlega fyrir stuðninginn. Stjórn UMF Þristar |
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Tuesday, 05 May 2009 |
|
Vetrarstarfi lýkur nú í vikunni og síðasta æfingin verður því nú á miðvikudaginn. Þökkum við iðkendum kærlega fyrir vetrurinn. |
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 4 af 53 |